8.9.2022

Setning Alþingis þriðjudaginn 13. september 2022

Alþingi verður sett þriðjudaginn 13. september og hefst þingsetningarathöfnin kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, predikar og biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, og séra Elínborg Sturludóttir, prestur í Dómkirkjunni, þjóna fyrir altari. Dómorganistinn Kári Þormar leikur á orgel og Kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 153. löggjafarþing. Graduale Nobili syngur við þingsetningarathöfnina, undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 15:30. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður m.a. hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2023 útbýtt.

Hljóðútsending verður frá messu og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður frá þingsetningarfundi á RÚV. Útvarpsútsending verður á Rás 1 frá messu og þingsetningu.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 14. september kl. 19:35.
Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2023 fimmtudaginn 15. september.